Fjölskyldan
Styrktaraðilar
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 2 júlí
24.03.2007 20:23:17 / tryllir

Beggi stóð sig vel á lágmarksmótinu.

Beggi stóð sig vel á lágmarksmótinu hjá kraft í dag !!!!

 

Beggi Turbo stóð sig vel á lágmarksmótinu hjá kraft í dag og tók eftirfarandi tölur

 

hnébeygja : 180 kg

bekkpressa : 135 kg

réttstöðulyfta :215 kg

samanlagt 530 :) Kemur á næsta ári vantar bara 100 kg upp á lágmarkið. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 13:45:20 / tryllir

tryllirinn í pásu.

Tryllirinn í pásu.

Tryllirinn er kominn í pásu frá páver í bili til þess að styrkja hjónaband sitt við Immu. Við erum flutt aftur til Njarðvíkur í ferska sveitaloftið. Áhugasamir geta skoðað hina bloggsíðuna HÉRNA 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 17:00:54 / tryllir

tryllirinn að jafna sig eftir lungnabólguna

Tryllirinn að jafna sig eftir lungnabólguna ....

Tryllirinn er að jafna sig eftir lungnabólguna og tók æfingu núna á laugardag þar sem hann repsaði aðeins deddið 120kgx5, 140kgx4,160kgx3,180kgx3,200kgx2 og reyndi við bætingu 235kgx1 ..... en það fór bara 2/3 upp að hné ..... kemur bara síðar.

 Annars er það að frétta að tryllirinn er aðeins 124 kg að líkamsþyngd og ætlar að keppa þann 13 mars hjá wpc í push&pull í -125 kg flokki og síðan á opna akureyrarmótinu í réttstöðu þann 24 mars í 125 kg flokki.....

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 16:26:18 / tryllir

tryllirinn enn með lungnabólgu .....

Tryllirinn enn með lungnabólgu ....

Tryllirinn er enn með lungnabólgu en er á sýklalyfjum með skemmtilegum aukaverkunum eða hitt þó heldur sem er niðurgangur !!!!!!!

 tók samt þrjú sett á bekk í dag 60x5 , 60x5 og 60x10 rétt til að hreyfa sig aðeins en djöfull eru þessi veikindi pirrandi, vona að þetta fari að lagast sem fyrst.

 með kraftakveðju

 Tryllirinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 13:58:42 / tryllir

Tryllirinn með lungnabólgu.

Tryllirinn með lungnabólgu.

Þá hefur flensan náð tökum á tryllinum eins og öðrum landsmönnum og er hann kominn með lungnabólgu og byrjaður á sýklalyfjum. Sagan byrjaði þannig að tryllirinn fór á föstudaginn upp á slysó að láta tékka á sér en var bara mældur hiti og blóðþrýstingur og sendur heim lyfjalaus ..... síðan fór heilsunni hríðversnandi um helgina og fór tryllirinn síðan aftur í gær að láta skoða málin betur .....

 hitinn var kominn í 39,3 gráður, blóðprufur komu sýktar til baka, lungnamyndatakan sýndi ský á lungunum ..... einnig var tekið hjartalínurit og þvagprufa og fékk tryllirinn einnig saltvatn í æð og hitalækkandi lyf ......

Núna er bara að slappa af en tryllirinn stóðst ekki mátið og deddaði smá í dag

120x5 , 140x4 , 150x3 , 160x2 ,170x1 og loks 200x1 reyndi við 210x1 en fór bara hálfa leið upp að hné allt var þetta gert beltislaust ......


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 16:00:36 / tryllir

Tryllirinn að koma til .....

Tryllirinn að koma til.....

 

 

Tryllirinn er allur að koma til eftir að hafa slitið lærvöðva og beygði í dag 200 kg x 1 helþungt en var í góðri dýpt og fín lyfta. Allt að koma :)

Tók líka smá bekk seinna í gær og var þar að repsa bætingar. Hitaði upp med 60x10 og 80x5 en svo komu bætingarnar  90x10 !!!!! og 100x3 !!!!!

 

 

Hérna fyrir neðan er hægt að skoða

230 kg réttstöðulyftuna.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 13:29:54 / tryllir

Tryllirinn deddar 230kg á æfingu.

Tryllirinn deddar 230 kg.......

 

Tryllirinn var í gær á æfingu og fór í 160kg x3 í hnébeygjunni og bætti sig í deddinu með því að taka 230kg. Mikil baráttulyfta sem tryllirinn sigraði. Það kemur video af lyftunni eftir helgi og svo var farið í 180kg á búkka og reynt við 200kg sem hafðist ekki....


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 12:52:02 / tryllir

Kraftaheimasíðan.

Kraftaheimasíðan

Nú er byrjað að ritskoða á kraftaheimasíðunni hans magi-sters, og var einni umræðunni lokað vegna þess að fréttastjóranum líkaði ekki skoðanir fólks. Þykir tryllinum þetta skjóta skökku við og hélt að það væri hægt að "commenta" til þess að fólk gæti tjáð sínar skoðanir. Var þetta umræðan um Silfursport og hver ætti stöðina í raun. Eins og allir vita þá voru það tveir stofnendur að stöðinni, þau Jón "Bóndi" Gunnarsson fyrrverandi formaður KRAFT og Jóhanna Eiríksdóttir núverandi formaður KRAFT.

Þótt að bóndinn hafi lent í þessu leiðindarmáli sem upp kom um seinustu helgi sem hefur sett svartann blett á sportið þá er óþarfi fyrir fréttastjórann magi-ster að byrja að ritskoða vegna þess að skoðanir sumra fara fyrir brjóstið á honum eða einhverjum aðilum út í bæ eða að það sé verið að tala um viðkvæma hluti.

Það er ekki eins og það hafi ekki verið talað um viðkvæma hluti áður m.a. er skotið á þekktann fatlamola útaf líkamslykt hans, en fréttastjórinn lokar ekki á þá umræðu .... greinilega ekki sama hvort það er jón ( bóndi ) eða SÉRA JÓN ......


» 36 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 14:50:00 / tryllir

Tryllirinn í 3 sæti á Íslandsmótinu í bekkpressu í súpernunum.

Tryllirinn í 3 sæti á Íslandsmótinu í Bekk í súpernum ...

 

Tölvutryllirinn var í gær að keppa á Íslandsmótinu í bekk og var í 3 sæti með 120 kg í súpernum þar sem hann sigraði Begga Túrbó á stigum. Tryllirinn var 133 kg að skjóðu en Túrbóinn 152 kg. Tryllirinn reyndi við 132,5 kg sem fór smá af stað en Túrbóinn við 135 kg .... Gott og skemmtilegt mót og Tryllirinn stóð við stóru orðin um verðlaun, Honum til aðstoðar voru Sólmyrkvinn og Stórfyrirferðin sem samanlagt eru á fimmta hundrað kíló .... sannkallað þungarvigtarlið þar á ferð ....


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 18:51:08 / tryllir

tryllirinn á bætingavegi ....

Tryllirinn á bætingarvegi ....
Tryllirinn er að jafna sig eftir meiðslin og gengur ágætlega. Hann fór í 210kg í réttstöðunni beltislaus í gær og 190kg á búkka bara létt æfing og síðan var farið í smá bekk létt pump og hnébeygju en þar voru léttar þyngdir 60kg 10x, 70kg 10x og loks 100 kg 10x .....
Vonandi verða meiðslin fljót að jafna sig þannig að það verði hægt að hefja æfingarnar á ný á fullu.
með kveðju
tryllirinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 19:47:39 / tryllir

tryllirinn meiðist ....

Tryllirinn meiðist.
Emil Tölvutryllir meiddist nýlega þegar hann sleit vöðva í hægra læri og sögðu læknar honum að hvíla í 6 - 8 vikur ...... þessir læknar eru bara með hræðsluáróður og verður tryllirinn engu að síður með á amk bekkmótinu þann 3 feb og ætlar að sjá til með byrjenda og lágmarksmótið. Ef allt gengur að óskum verður hann þar einnig.

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 14:08:28 / tryllir

Íslandsmótið í bekk.

Íslandsmótið í bekk.

 

Þann 3 feb fer Íslandmótið í bekkpressu fram í Laugardalshöllinni. Í súpernum eru þrír skráðir en þeir eru Tryllirinn, Túrbóinn og Jón Valgeir. Ef ekki fleiri skrá sig þá verður Jón Valgeir mjög sennilega öruggur sigurvegari en hörð barátta um annað sætið.

Beggi Túrbó lét hafa eftir sér að Tryllirinn myndi ekki ná 110 kg þótt að í bekkpressubol væri. Tryllirinn sagði honum að bíða bara rólegum og horfa á 125-130 kg fjúka upp !!!!! Binnsterinn er að aðstoða tryllirinn fyrir mótið en það er ávísun á frábærann árangur .....


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 14:08:42 / tryllir

Bætingar.

Bætingar á æfingu ....

 

Tryllirinn var á þungri æfingu í gær og gekk hún bara nokkuð vel. Það var beygja & dedd sem var tekið. Í beygjunni var hitað upp með 5x40kg og 5x60kg.

Síðan var farið í 5x100kg og 3x140kg. Síðan fór tryllirinn í 3x160kg vafinn og 2x180 kg vafinn og loks í bætingu 3x200kg !!!!!

Í deddinu var byrjað á 5x120kg, síðan 3x160kg, 2x180 kg, 1x200 kg og tvær bætingar 1x220kg og 1x225 kg en 230 kg fóru einungis hálfa leið upp.

Allt að gerast þessa daganna og á þriðjudaginn verður þung bekkpressuæfing í bol fyrir íslandsmótið í bekk sem fer fram 3 feb.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 14:12:03 / tryllir

Tryllirinn ......

Tryllirinn breytir um stíl.

 

Tryllirinn er nú byrjaður að æfa eingöngu með ófötluðum og gengur ágætlega, var á æfingu í gym80 í fyrradag og tók beygjuna þar. Það verður bara 3 daga æfingaprógram hjá tryllinum og verður það eftirfarandi : mánudagur -> beygjur, miðvikudagur bekkur og föstudagur dedd. Einfalt prógram en svo koma aukaæfingar náttúrlega inn á daganna líka :) Það er verið að keyra upp fyrir bekkpressumót kraft þessa daganna og verður gaman að sjá hvernig til tekst þar.

 

Tryllirinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 21:59:57 / tryllir

Hræringar í páverheiminum .....

Hræringar í páverheiminum ......


Emil Tölvutryllir hefur ákveðið að söðla um og segja skilið við kraftlyftingar fatlaðra og hætta í ÍFR ( Íþróttafélagi Fatlaðra í Reykjavík ) og þar með keppni á bæði kraftlyftingar og aflraunamótum fatlaðra.

Eftir að í ljós kom að Tryllirinn var ekki valinn á Special Olympics 2007, sem eru heimsleikar þroskaheftra og verða haldnir í Shanghai í Kína daganna 2 - 11 október 2007.

Það eru engin leiðindi í þessum viðskilnaði og tryllirinn ákvað sjálfur og ekki fyrir áeggjan neins að núna væri kominn tími til þess að skipta og vettvang. Munu Tryllirinn og Imma konan hans að hefja æfingar í nýju stöð Jóns Bónda og Jóhönnu sem ber heitið Silfursport.

Vill Tölvutryllirinn þakka Arnari Logg fyrir öll árin í lyftingum hjá fötluðum og óskar honum jafnt sem öðrum fatlamolum alls hins besta í framtíðinni.

Með kraftakveðju

Emil Tölvutryllir.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2